2018 - Leikskóli á Seltjarnarnesi

Megininntak tillögu
Megininntakið er vinkillaga bygging á 1 – 2 hæðum meðfram Suðurströnd og Nesvegi. Tillagan mótar skýra formgerð við helstu gatnamót Seltjarnarness og skapar þar heilsteypta götumynd. Byggingin skýlir fyrir ríkjandi vindáttum og rammar inn sólríkt leiksvæði leikskólans. Myndast þar líflegt uppbrot á báðum hæðum þar sem bygging og útisvæði renna saman í eina lifandi heild.

Helstu forsendur
Um er að ræða nýja leikskólabyggingu fyrir allt að 300 börn við helstu gatnamót Seltjarnarness. Hún sameinar leikskóla sveitarfélagsins undir eitt þak og verður miðpunktur þar sem stór hluti íbúa kemur saman í byrjun og lok hvers dags.
Hinn nýi leikskóli er vel staðsettur, hann er í góðum tengslum við þjónustu og nærsamfélagið. Útsýni frá lóðinni er með besta móti, þar má sjá náttúrufegurð og mannlíf á aðliggjandi götum. Mikilvægt er að ný leikskólabygging nýti þessi gæði og skapi líflegan ramma utan um leikskólasamfélagið.

Tillagan var tilnefnd til innkaupa.

Scroll to Top