Gæðastefna VA arkitekta
Hlutverk VA arkitekta er að veita alla hefðbundna hönnun, ráðgjöf og verkefnastjórnun á sviði arkitektúrs og skipulags.
- Gæðastefnan miðar að því að setja viðskiptavini í öndvegi og að veita framúrskarandi þjónustu.
- VA ARKITEKTAR ehf. leita listrænna, félagslegra og tæknilegra lausna sem samræmast almennum hagsmunum samfélagsins og virðingu fyrir náttúrunni auk þess að uppfylla kröfur viðeigandi laga og reglugerða.
- Fyrirtækið leitast við að hafa á að skipa úrvals starfsfólki á sviði byggingalistar, mannvirkjahönnunar og skipulags með því að veita markvissa þjálfun og endurmenntun.
- Það er stefna fyrirtækisins að allir starfsmenn taki virkan þátt í stöðugum umbótum á starfsemi fyrirtækisins.
Gæðakerfi VA arkitekta hefur fengið vottun samkvæmt staðli ISO 9001.