2022 - Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal

Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal er hluti stærra mannvirkis sem er Miðstöð menntunnar- menningar og íþrótta í Úlfarsárdal. Íþróttamiðstöðin þjónar sem íþróttahús og félagsheimili Fram ásamt því að hýsa íþróttakennslu Dalskóla. Undir hverfistorgi er gangur sem tengir íþróttamiðstöðina við Dalslaug, menningarmiðstöðina Miðdal og Dalsskóla.
Í húsinu verður 2170 m2 íþróttasalur með svalagangi og stúkum beggja vegna, æfinga- og bardagasalir, búningsklefar, samkomusalir, fyrirlestrarsalur og félagsaðstaða. Við húsið er keppnisvöllur með gervigrasi ásamt 1600 manna útistúku, samtals 9828m2 . Þá eru líka grasvellir til æfinga.

Scroll to Top