Persónuverndarstefna

VA Arkitektar ehf. leggur áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018 og reglugerð Evrópusambandsins um persónuvernd (GDPR).

Hvaða upplýsingum söfnum við ?

Við kunnum að safna eftirfarandi upplýsingum:

  • nafni, netfangi og símanúmeri vegna samskipta og fyrirspurna,
  • kennitölu, greiðsluupplýsingum og upplýsingum um viðskipti þegar það er nauðsynlegt vegna samninga, reikningagerðar og bókhalds,
  • upplýsingum sem þú veitir með samþykki þínu, t.d. vegna markaðssamskipta eða birtingar myndefnis.

Tilgangur vinnslu

Persónuupplýsingar eru unnar til að:

  • svara fyrirspurnum,
  • veita þjónustu og uppfylla samningsskyldur,
  • uppfylla lagaskyldur, svo sem samkvæmt bókhaldslögum,
  • sinna markaðs- og kynningarstarfi með samþykki þegar þess er krafist.

Miðlun upplýsinga

VA Arkitektar selja ekki persónuupplýsingar. Upplýsingum kann að vera miðlað til þjónustuaðila sem vinna fyrir fyrirtækið, svo sem bókara, hýsingaraðila eða upplýsingatækniþjónustu, eftir því sem nauðsynlegt er og á grundvelli vinnslusamninga.

Öryggi og varðveisla

Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar. Upplýsingar eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er samkvæmt tilgangi vinnslunnar eða lögbundnum skyldum.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga,
  • fá aðgang að upplýsingum um þig,
  • óska eftir leiðréttingu eða eyðingu upplýsinga,
  • andmæla vinnslu eða óska eftir takmörkun hennar,
  • afturkalla samþykki þegar vinnsla byggist á samþykki.

Fyrirspurnir vegna persónuverndar má senda á vaarkitektar@vaarkitektar.is.

Breytingar á stefnunni

Persónuverndarstefna þessi kann að taka breytingum. Nýjasta útgáfa verður ávallt birt á heimasíðu fyrirtækisins.

Fyrst samþykkt: 12. júlí 2018

Síðast breytt: 12. maí 2026

Persónuverndarfulltrúi VA Arkitekta er Sigþrúður Hrönn Friðriksdóttir

Scroll to Top